Tónlist

LCD Soundsystem: Sound of Silver -fjórar stjörnur

Farið er um víðan völl en platan heldur sér fast saman í frábærlega heilsteyptu verki sem ögrar, gleður, hressir, bætir og kætir!
Farið er um víðan völl en platan heldur sér fast saman í frábærlega heilsteyptu verki sem ögrar, gleður, hressir, bætir og kætir!

James Murphy, aðalhausinn á bak við LCD og stofnandi DFA plötufyrirtækisins, er án efa einn mest þenkjandi tónlistarmaður samtímans. Snilldin á bak við aðra plötu LCD Soundsystem er einfaldlega slík. Murphy hefur tekist að skapa danstónlistarkokteil sem á skilið allsherjar lýsingarorðakyn­svall, góðra að sjálfsögðu en einnig ögrandi og dónalegra.

Fyrstu fimm lög plötunnar eiga öll skilið titilinn lag ársins. Get Innocuous! hefur veisluna með stæl og Time to Get Away hefur innanborðs fáránlega grípandi bassalínu sem ein og sér fær mann til þess að dilla sér. Kúabjalla setur svo punktinn yfir i-ið auk hressilegs Stevie Wonder hljóðgervils. North American Scum er síðan slagari af bestu gerð og með texta til að drepa fyrir. Næstu tvö lög á eftir koma reyndar úr svolítið annarri átt, mun tilfinningaþrungnari og ekki eins hress. Segja okkur að Murphy er greinilega dauðans alvara með tónlist sinni. Söknuðurinn í Someone Great er greinilegur en hlúið er vandlega að öllum smáatriðum sem færir lagið upp í hæstu hæðir. All My Friends inniheldur líka einhvers konar trega en lagið minnir óneitanlega á Brian Eno og U2, svolítið eins og ef Eno hefði fengið að ráða öllu í því samstarfi. Frábært lag með mergjaðri uppbyggingu.

Þarna er platan rúmlega hálfnuð og þá fyrst birtist tónn sem ekki beint er hægt að setja út á en er kannski ekki nógu góður. Ein af örfáum ástæðum fyrir því að þessi plata getur ekki fengið fullt hús stiga. Us V Them er einum of endurtekningasamt en partíið vantar ekki. Watch the Tapes setur skemmtilegan svip á plötuna en nær ekki með tærnar nógu nálægt hælum fyrri laga. Síðustu tvö lögin eru svo eins ólík og þau eru góð. Sound of Silver, titillag plötunnar, er framþróaðasta danslag hennar með forvitnilegum pælingum. Í lokalaginu heldur Murphy síðan áfram að sýna okkur hversu góður textasmiður hann er og lagið sjálft flott í alla staði.

Sound of Silver er meistaraverk, þannig er það bara. Danstónlistarkokteill meistaranna, eignist hana strax.

Steinþór Helgi Arnsteinsson






Fleiri fréttir

Sjá meira


×