Tónlist

Hara skrifar undir samning við Concert

Jógvan og Hara hafa borist töluvert af fyrirspurnum um að troða upp saman.
Jógvan og Hara hafa borist töluvert af fyrirspurnum um að troða upp saman.

„Hljómsveitin byrjar að æfa strax á miðvikudag og Jógvan byrjar að syngja á fimmtudaginn,“ segir Einar Bárðarson en ráðgert er að fyrsta platan með færeyska söngvaranum Jógvan komi út strax í byrjun maí. Einar stóð uppi sem sigurvegari á föstudaginn langa þegar úrslitin í X-Factor voru kunngjörð en skjólstæðingur hans Jógvan hafði mikla yfirburði og sigraði með yfir sjötíu prósent allra atkvæða.

Einar upplýsir að á plötunni verði margar af helstu perlum Jógvans úr þáttunum auk þess sem einhver frumsamin lög eftir söngvarann fá að slæðast með. „Hann er lunkinn lagasmiður en við verðum auðvitað líka að gæta þess að hafa eitthvað við hæfi þeirra sem fylgdu honum í gegnum keppnina.“

Páskarnir hafa ekki farið í að liggja með tærnar uppí loftið heldur hafa tónleikahaldarar víða um land sýnt Jógvan mikinn áhuga. „Það hafa verið að hrynja inn bókanir yfir alla páskana og sumt getur Jógvan gert en annað ekki,“ útskýrir Einar. Hara-stúlkurnar frá Hveragerði sem veittu Jógvan nokkurra keppni munu heldur ekki sitja aðgerðalausar á næstunni því útgáfu-og umboðsfyrirtækið Concert mun á næstu dögum skrifa undir samning við þær og fær þjóðin því að heyra meira til þeirra. „Systurnar trylltust af gleði þegar þær fengu veður af þessu,“ segir Einar en þó nokkrar fyrirspurnir hafa borist um að fá Jógvan og Hara til að troða upp saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.