Tónlist

Angurværð og spé

Söngkonan Sesselja Kristjánsdóttir syngur í TÍBRÁ.
Söngkonan Sesselja Kristjánsdóttir syngur í TÍBRÁ.

Söngkonan Sesselja Kristjánsdóttir heldur tónleika ásamt Guðríði St. Sigurðardóttur í TÍBRÁ, tónleikaröð Kópavogs í Salnum annað kvöld.

Á efnisskrá tónleikanna eru spænsk og frönsk sönglög eftir de Falla og Bizet auk kabarettsöngva eftir Kurt Weill, Bolcom, Hollander og Spoliansky. Suðrænir tónar einkenna fyrri hluta tónleikanna í sönglögum sem eru í senn tilfinningaþrungin, létt og melankólísk. Seinni hluti efnisskrárinnar inniheldur söngva þar sem skemmtanagildi skoplegra texta og tónlistar ráða ríkjum, þótt vissulega sé oft stutt í kaldhæðni og svartan húmor.

Sesselja stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk þaðan prófi frá tónmenntakennaradeild og síðar 8. stigi frá söngdeild skólans, þar sem kennari hennar var Rut Magnússon. Þaðan hélt hún í framhaldsnám til Berlínar í Hochschule für Musik Hanns Eisler og lauk þar diplómaprófi með hæstu einkunn haustið 2000. Sumarið 2001 lauk Sesselja svo eins árs framhaldsnámi frá sama skóla.

ún hélt debut-tónleika sína í TÍBRÁ í Salnum árið 2002 og vöktu þeir tónleikar mikla hrifingu en síðan þá hafa fjölmargir kynnst henni í hlutverkum í Íslensku óperunni og annars staðar.

Þær Sesselja og Guðríður hafa unnið saman um nokkurt skeið en koma nú í fyrsta skipti saman fram á TÍBRÁR tónleikum.

Tónleikarnir hefjast kl. 20.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×