Ávaxtarkarfan verður að sinfóníu 20. apríl 2007 09:45 Þorvaldur Bjarni semur hljómsveitarverk fyrir sinfóníuna upp úr barnaleikritinu Ávaxtarkörfunni.
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson situr nú sveittur og semur hljómsveitarverk úr tónlist Ávaxtarkörfunanar fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands. Áætlað er að það verði flutt 12. júní en þetta barnaleikrit Þorvalds og Kristlaugar Maríu Sigurðardóttur sló eftirminnilega í gegn þegar það var frumsýnt árið 1998. Það var síðan tekið aftur til sýningar árið 2003 og var aðsóknin engu síðri þá. Örn Árnason verður að öllum líkindum einn af sögumönnunum. „Þetta er ótrúlega skemmtilegt efni og það er gaman að gera svona sinfónískt efni fyrir krakkana," útskýrir Þorvaldur Bjarni þegar Fréttablaðið náði tali af honum. „Söngleikurinn fjallar um liti og hvað allir eru ólíkir og ég ætla að leitast við að reyna sýna hið ótrúlega fjölbreytta litróf hljómsveitarinnar þannig að börnin átti sig betur á hlutverki hennar," bætir Þorvaldur við en þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sinfónían og Þorvaldur taka höndum saman því hljómsveitin Todmobile hélt tónleika með sveitinni fyrir nokkrum árum þar sem lög hennar höfðu verið færð í stílinn. Selma Björnsdóttir lék á sínum tíma stórt hlutverk í Ávaxtarkörfunni. Enn á eftir að semja við sögumenn og söngvara fyrir tónleikana en eftir því sem Fréttablaðið kemst næst munu þau Selma Björnsdóttir, Valgerður Guðnadóttir, Andrea Gylfadóttir, Örn Árnason og Björgvin Franz Gíslason lesa og bresta í söng þegar við á. Þorvaldur er annars að leggja lokahöndina á tónlistina fyrir kvikmyndina Astrópíu en nýlega auglýsti hann eftir lögum frá lítt þekktum hljómsveitum fyrir myndina. „Okkur hefur borist alveg heill hellingur af góðri tónlist og við ætlum að setjast niður eftir helgi til að hlusta á herlegheitin."
Mest lesið Miðpunktur kvöldsins í gegnsæjum samfestingi á árshátíð RÚV Lífið Ástin blómstrar hjá Steinunni Lífið Langaði í fleiri ævintýri og fluttu því frá Íslandi Lífið Frægasta dúkka í heimi mótaði Erlu mest Lífið Skaust fyrr af æfingu og sótti milljónir í verðlaunafé Lífið Hátísku-Laufey á fremsta bekk í París Tíska og hönnun Ástin spyr ekki um aldur hjá þessum pörum Lífið Endurnýjuðu heitin að rússneskum sið Lífið Selur íbúðina og flytur til Eyja Lífið Útskrifaðist úr verkfræði og gerðist tónlistarmaður Tónlist Fleiri fréttir Útskrifaðist úr verkfræði og gerðist tónlistarmaður Samstarfsverkefni Loreen og Ólafs Arnalds lítur dagsins ljós Dusta rykið af danssokkunum Daniil og Birnir í eina sæng Angie Stone lést í bílslysi „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna Bein útsending: Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna Draumurinn rættist að syngja með Bubba Gekk 20 metra á 35 mínútum í tíu gráðu frosti The Smashing Pumpkins til Íslands Þau fóru áfram í úrslit söngvakeppninnar Sjá meira