Tónlist

Samkeppni um nýtt myndband

Aðdáendur Bjarkar fá tækifæri til að gera myndband við lagið Innocence, af plötunni Volta.
Aðdáendur Bjarkar fá tækifæri til að gera myndband við lagið Innocence, af plötunni Volta.

Aðdáendur Bjarkar Guðmundsdóttur verða í lykilhlutverki við gerð myndbands við lagið Innocence. Lagið er það fyrsta af nýrri plötu Bjarkar, Volta, sem gert verður tónlistarmyndband við.

Á aðdáendasíðunni bjork.com er efnt til samkeppni, þar sem fólki gefst færi á að gera myndband við lagið. Samkvæmt heimasíðunni er hugmyndin komin frá Björk sjálfri, og það verður jafnframt hún sem velur besta myndbandið. Höfundur þess fær svo að vinna með söngkonunni við að leggja lokahönd á verkið og feta þar með í fótspor ekki óþekktari manna en Spike Jonze og Michel Gondry.

Á síðunni má nálgast myndir af listaverkinu sem Björk klæðist á umslagi plötunnar. Þar má einnig finna hlekk á lagið sjálft, sem og texta. Engar reglur gilda um myndbandið aðrar en þær að því þarf að skila í Quicktime skjali, og að það þarf að hafa borist í byrjun júlí. Sigurvegarinn og söngkonan munu hins vegar leiða saman hesta sína í byrjun ágúst. Nánari upplýsingar fást með því að skrá sig á póstlista keppninnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.