Bíó og sjónvarp

Flottar heimildarmyndir fyrir vestan

Hálfdán Pedersen skipuleggur flotta heimildarmyndahátíð á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina.
Hálfdán Pedersen skipuleggur flotta heimildarmyndahátíð á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina. MYND/Anton

„Við ætlum að frumsýna tæplega tuttugu nýjar íslenskar heimildarmyndir,“ segir Hálfdán Pedersen, einn skipuleggjenda heimildarmyndahátíðarinnar Skjaldborg "07 sem verður haldin í fallegu gömlu bíóhúsi á Patreksfirði um Hvítasunnuhelgina.

„Meðal myndanna sem verða frumsýndar eru Syndir feðranna, myndin hans Bergsteins Björgúlfssonar um upptökuheimilið í Breiðuvík sem er búið að vera mikið í fréttum og Án titils: Sigur Rós á hljómleikaferðalagi sem er mjög lífleg og skemmtileg mynd um evróputúr hljómsveitarinnar,“ segir Hálfdán.

Einnig verður frumsýnd myndin Hugleikir, fyrsta heimildarmynd Hugleiks Dagsonar myndasöguhöfunds með meiru, sem fjallar um hlutverkaleiki á borð við Dungeons and Dragons og allt sem fylgir þeim.

 

Hátíðin á Patreksfirði er enn einn liður í hinum mikla uppgangi sem hefur verið á Vestfjörðum síðustu misseri, alveg álverslaust. Skemmst er að minnast hátíðarinnar Aldrei fór ég suður sem laðaði að sér blaðamenn frá mörgum erlendum stórblöðum og fegurðarsamkeppninnar Óbeisluð fegurð sem vakti athygli langt út fyrir landsteinana.

 

„Við erum með þessari hátíð að skapa vettvang fyrir heimildarmyndagerðarfólk til að sýna myndir sínar á sama tíma og við erum að drífa borgarfólkið út á land. Það verður margt fleira að gera þarna en að horfa á myndir. Það verður hægt að fara í siglingar, veiða þorsk og svo verður slegið upp allsherjar fiskigrillveislu og sveitaballi.“ segir Hálfdán.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×