Bíó og sjónvarp

Knightley býðst hlutverk í leikhúsi

Keira Knightley segist vera orðin þreytt á sviðsljósinu og vill leika á sviði.
Keira Knightley segist vera orðin þreytt á sviðsljósinu og vill leika á sviði.

Leikkonan Keira Knightley íhugar alvarlega að hætta kvikmyndaleik en leikkonan segir að kastljós fjölmiðlanna sé orðið alltof mikið. Þetta kemur fram í viðtali við tímaritið Elle.

Knightley er ein stærsta kvikmyndastjarna heims um þessar mundir og verður því fyrir miklum ágangi af hendi svokallaðra paparazzi-ljósmyndara sem sitja fyrir henni í hverju horni. Myndbirting af leikkonunni á vefsíðu hjá baráttusamtökum gegn átröskun er þó talin hafa verið kornið sem fyllti mælinn en Knightley hefur ávallt neitað því að mæla megrun bót heldur segist alltaf hafa verið grönn frá náttúrunnar hendi.

Í gær var síðan greint frá því að hinn virti konunglegi Shakespeare-leikhópur í London hefði lýst yfir miklum áhuga á að fá Knightley til liðs við sig. Leikkonan sagðist vera í skýjunum yfir þessum áhuga og fannst það mikil viðurkenning að jafnmikið fagfólk og þarna störfuðu skyldu hafa trú á sér í verkefnið. Þannig að allt stefnir í að Keira Knightley muni ljúka ferlinum á hvíta tjaldinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×