Tónlist

Hafnaði góðu boði

Madonna hafnaði boði um að syngja á minningartónleikum um Díönu prinsessu.
Madonna hafnaði boði um að syngja á minningartónleikum um Díönu prinsessu.

Söngkonan Madonna hefur hafnað boði um að koma fram á minningartónleikum um Díönu prinsessu á Wembley í júlí. Ástæðan er sú að hún verður önnum kafin við æfingar fyrir Live Earth-tónleika sex dögum síðar.

Tónskáldið Andrew Lloyd Webber hafði beðið Madonnu um að endurtaka hlutverk sitt sem Evita fyrir tónleikana en hún hafði þegar bókað sig á Live Earth. Synir Díönu og Karls Bretaprins, Harry og Vilhjálmur, skipuleggja tónleikana á Wembley og hefur Elton John þegar lofað að syngja lagið Candle in the Wind.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.