Tónlist

Cortes syngur fyrir heimilislausa

Garðar Þór Cortes mun syngja við hlið allra hinna götulistamannanna á strætum Lundúnaborgar næstu vikur.
Garðar Þór Cortes mun syngja við hlið allra hinna götulistamannanna á strætum Lundúnaborgar næstu vikur. MYND/Hari

Garðar Þór Cortes mun á næstu vikum standa fyrir heldur óhefðbundnum tónleikum víðsvegar um London. Garðar hyggst syngja á götum úti, í bókstaflegri merkingu, og mun hann koma fram í verslunarmiðstöðvum, við járnbrautarstöðvar og á fleiri opinberum stöðum í London.

Markmiðið með uppátæki Garðars Þórs er að vekja athygli á aðstæðum heimilislausra íbúa London, en yfirvöld í London standa fyrir miklu átaki í þeim efnum þessa dagana, auk þess sem hann reynir að breiða út boðskap klassískrar tónlistar. Enska blaðið Independent greinir frá þessu fyrirhugaða „tónleikaferðalagi“ Garðars Þórs.

„Það verður algjörlega ný reynsla fyrir mig að syngja á götunni í svo mikilli nálægð við hlustendur. Ég trúi því hins vegar að ópera sé tónlist sem snertir hjörtu fólks. Ég vonast til að almenningur muni njóta flutningsins hjá mér,“ segir Garðar Þór við Independent. Enn fremur segir að Garðar Þór muni ekki þiggja laun fyrir þáttöku sína í átakinu.

Fyrstu tónleikar Garðars munu fara fram á Leicester-torginu þann 1. júní næstkomandi en staður og stund annarra útitónleika Garðars Þórs hafa ekki verið tilkynntir opinberlega, enda mun eitt aðalmarkmið skipuleggjanda vera að koma almenningi á óvart með flutningi íslenska tenórsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.