Bíó og sjónvarp

Árviss eins og krían

Brúðubíllinn byrjar sumarrúntinn Fyrsta leikhúsferð margra barna er á sýningar Brúðubílsins.
Brúðubíllinn byrjar sumarrúntinn Fyrsta leikhúsferð margra barna er á sýningar Brúðubílsins.

Eitt af kennileitum sumarsins er Brúðubíllinn sem hefur skemmt yngstu leikhúsgestunum frá árinu 1980 undir stjórn Helgu Steffensen.

Sýningar Brúðubílsins eru sniðnar að þörfum yngstu borgaranna og eru oft þeirra fyrstu leikhúsferðir.

Í ár eru margar brúður innanborðs, bæði gamlir og nýir kunningjar. Júníleikritið heitir „Segðu mér söguna aftur“ og samanstendur af stuttum leikþáttum sem allir fjalla um það hvað það er mikilvægt að vera maður sjálfur – ekki halda að allir aðrir hafi það betra og séu fallegri. Ein persónan þar er til að mynda asni sem langar þessi lifandis ósköp að vera ljón. Helga Steffensen semur handrit og gerir brúðurnar en henni til halds og trausts við stjórnunina er Aldís Davíðsdóttir. Leikstjóri sýningarinnar er Sigrún Edda Björnsdóttir en hún sér einnig um leikraddir ásamt Ladda, Álfrúnu Örnólfsdóttur og Helgu.

Fyrsta sýningin fer fram í Hallargarðinum við Fríkirkjuveg 11 næstkomandi mánudag kl. 12 en dagskrá sumarsins má nálgast á heimasíðunni www.barnanet.is/brudubillinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×