Tónlist

Desyn til landsins

Plötusnúðurinn Desyn þeytir skífum um helgina.
Plötusnúðurinn Desyn þeytir skífum um helgina.

Plötusnúðurinn Desyn Masiello spilar á tveimur klúbbakvöldum hér á landi um helgina. Hann verður á Akureyri í kvöld og á laugardagskvöld verður hann á Nasa.

„Þetta verður í fyrsta skipti í sögunni sem súperplötusnúður kemur til Akureyrar. Ég býst fastlega við því að það verði uppselt enda bíladagar á sama tíma og bærinn smekkfullur,“ segir skipuleggjandinn, Kristinn Bjarnason hjá Flex Music.

Miðasala á klúbbakvöldin fer fram á skor.is, í 12 Tónum og Centró á Akureyri. Miðaverð er 2.000 krónur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×