Tónlist

Nýstárleg hljóð og spánnýtt verk

Tónskáldið og klarinettuleikarinn Evan Ziporyn.
Tónskáldið og klarinettuleikarinn Evan Ziporyn. Mynd/Peter serling

Tónlistarhópurinn Aton stendur í stórræðum þessa dagana. Hópurinn kom fram á tvennum tónleikum á tónlistarhátíðinni Við Djúpið á Ísafirði í síðustu viku og vinnur þessa dagana að fyrstu plötu sinni sem væntanleg er síðar á árinu. Höfundar verka á fyrirhugaðri plötu eru meðal annars Hlynur Aðils Vilmarsson, Hugi Guðmundsson, Steingrímur Rohloff og Guðmundur Steinn Gunnarsson. Verkin eru samin á tímabilinu 1999-2006.

Í kvöld hefjast alþjóðlegir Atondagar í Fríkirkjunni þar sem hópurinn heldur tvenna tónleika ásamt góðum gestum, en hópinn að þessu sinn skipa: Berglind María Tómasdóttir flauta, Dean Ferrell bassi og Tinna Þorsteinsdóttir píanó.



Á tónleikunum í kvöld flytur hópurinn verk eftir ísfirska tónskáldið Jónas Tómasson og gamelansérfræðinginn og hinn heimskunna klarinettuleikara Evan Ziporyn frá Bandaríkjunum. Evan Ziporyn mun jafnframt tala um tónlist sína á tónleikunum.



Annað kvöld heldur Ziporyn tónleika ásamt eiginkonu sinni, Christine Southworth. Í fyrri hluta tónleikanna leikur hann verk fyrir klarinettur en í síðari hlutanum leika hjónin á svokölluð G’nder Wayang-slagverkshljóðfæri af tegund gamelan-hljóðfæra sem ættuð eru frá eyjunni Balí. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem heyrist í slíkum hljóðfærum á opinberum tónleikum hér á landi.

Tónleikarnir hefjast kl. 20.30






Fleiri fréttir

Sjá meira


×