Tónlist

Heimboð Bjarkar einber uppspuni

Einar Örn Segir fréttina vera uppspuna frá rótum
Einar Örn Segir fréttina vera uppspuna frá rótum

Breska götublaðið Daily Star birti í gær frétt sem fór eins og eldur í sinu um netið en þar var íslenska söngkonan Björk Guðmundsdóttir sögð hafa boðið poppstjörnunni Britney Spears að hafa afnot af heimili sínu í Reykjavík. Þar að auki var greint frá því að Björk hefði sent henni dagbókarbrot frá þeim tíma sem hún bjó í Lonon og átti í svipuðum vandamálum og Britney hefur glímt við auk bréfs þar sem íslenska stórstjarnan gefur henni góð ráð.

Einar Örn Benediktsson, nánasti samstarfsmaður Bjarkar, sagði þessa frétt vera uppspuna frá rótum og í raun algjört bull. „The Daily Star hefur hingað til ekki talist áreiðanlegur miðill og þeir hafa nú bara kokkað þetta upp,“ segir Einar Örn og var hlátur í huga. „Þarna er verið að blanda saman tveimur eða fleirum saman í eina frétt og þetta heldur bara engu vatni.“



Einar segist vissulega kannast við að Björk hafi rætt málefni Britney en ekki á þessum nótum. „Þetta er byggt á viðtali sem birtist í Times en þar sagðist Björk að hún skildi vel hegðun Britney í ljósi þessa gífurlega áreitis sem hún byggi við,“ segir Einar og bætir því við að þarna hafi Björk verið að svara spurningu blaðamanns um af hverju hún byggi ekki lengur í Bretlandi. „Þar eru náttúrlega fjölmiðlar ofan í hvers manns koppi,“ segir Einar.



Þetta er ekki í fyrsta skipti sem leiðir Britney og Bjarkar liggja saman því fyrir síðustu sólóskífu Spears lýsti hún því yfir að hún væri undir áhrifum tónlistarmanna á borð við Björk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.