Tónlist

Damon frumsýnir óperu

Damon Albarn er völundur á tónlistarsviðinu eins og sannast með nýju verki hans sem er ópera.
Damon Albarn er völundur á tónlistarsviðinu eins og sannast með nýju verki hans sem er ópera. Nordicphotos/afp

Nýtt verk Damons Albarn verður frumsýnt í Manchester á morgun. Verkið er sungið á mandarín-tungu og spilað er undir á glerharmonikku.

Ópera eftir popparann Damon Albarn verður frumsýnd í Manchester á Englandi á morgun.

Verkið ber heitið „Monkey: Journey to the West" en í viðtali við dagblaðið The Telegraph heldur tónskáldið því fram fullum fetum að þar sé ópera á ferð. Verkið er sungið, reyndar á mandarín-tungu, en greinarhöfundurinn getur þess að betra væri að líta á verkið sem kínverskan „byltingar-ballett" með rúmlega þrjátíu fimleikamönnum og dönsurum auk myndskreytinga Jamies Hewlett sem skrýtt hefur margmiðluð verkefni hljómsveitarinnar Gorillaz.



Hljóðfæraskipan er einnig heldur óvenjuleg en þar er leikið á glerharmonikku, kínverskar lútur og flautur auk hins tignarlega spils ondes Martenot sem tónskáldið franska Olivier Messiaen hampaði mjög og Albarn getur að hann sé nokkuð heillaður af.



Hljóðfæraleikarnir grípa einnig í túbur og fiðlur en eini þátttakandinn í flutningnum sem er algjörlega af „klassíska skólanum" er stjórnandi ævintýrisins, André de Ridder, en hann stýrði nýlega tónleikauppfærslu á óperu Hafliða Hallgrímssonar, Viröld fláa, sem sýnd var hér á vordögum í tilefni af Listahátíð.



Sjálfur segist Albarn aðeins hafa séð eina óperu, Orfeus eftir Monte­verdi sem leikstjórinn Shi-Zheng setti upp en sá leikstýrir einnig þessu nýjasta útspili Albarns. Sagan sjálf er einnig komin frá Zheng en hún byggir á fornri kínverskri goðsögu.



Albarn er sagður lítt gefinn fyrir að endurtaka sig svo forvitnir lesendur gætu þurft að hafa hraðann á ætli þeir ekki að missa af þessum viðburði en sýningum á verkinu lýkur 15. júlí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×