Tónlist

Led Zeppelin íhugar endurkomu

Rokkararnir útiloka ekki tónleikaferðalag.
Rokkararnir útiloka ekki tónleikaferðalag.

Þrír eftirlifandi meðlimir hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar Led Zeppelin eru sagðir íhuga að koma saman á ný. Hugmyndin er að koma fram saman á einum tónleikum síðar í sumar. Tónleikarnir verða haldnir til heiðurs Ahmet Ertgun, stofnanda Atlantic Records, en hann lést á síðasta ári. Ertgun þessi vann mikið með Zeppelin á sínum tíma og vilja hljómsveitarmeðlimirnir votta honum virðingu sína með því að stíga aftur á svið í þetta eina skipti.



Söngvarinn Robert Plant, gítarleikarinn Jimmy Page og bassaleikarinn John Paul Jones hafa allir tekið vel í hugmyndina, að sögn heimildarmanna breskra fjölmiðla, en með þeim í sveitinni yrði trommuleikarinn Jason Bonham, sonur upprunalegs trommuleikara Zeppelin, Johns Bonham.



Ef af endurkomunni verður mun þetta verða í fyrsta sinn í meira en tuttugu ár sem allir eftir­lifandi meðlimir sveitarinnar spila saman undir nafni Led Zeppelin, en síðustu opinberu tónleikar sveitarinnar voru á Live Aid-tónleikunum árið 1985. Síðan þá hafa Page og Plant unnið að ýmsum verkefnum saman, auk þess sem sá síðarnefndi hefur komið fram undir eigin nafni og spilað lög Led Zeppelin.



Ef minningartónleikar Ertgun ganga vel er ekki útilokað að hljómsveitin fari í tónleikaferðalag um heiminn. „Ef þeim verður vel tekið er nánast öruggt að farið verður í tónleikaferðalag,“ sagði einn heimildarmanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×