Tónlist

Gefa út skástu lögin sín

rallararnir í Hvannadalsbræðrum hafa gefið út plötuna Skást of.
rallararnir í Hvannadalsbræðrum hafa gefið út plötuna Skást of.

Hvanndalsbræður frá Akureyri hafa gefið út plötuna Skást of, sem hefur að geyma skástu lög sveitarinnar hingað til. Á meðal laga á plötunni eru Svarfdælskir bændur, Upp í sveit, Kisuklessa, Tíu litlir negrastrákar og Maístjarnan. Lögin, sem eru sextán talsins, eru tekin af plötum þeirra Ríða feitum hesti, Út úr kú og Hrútleiðinlegir.

„Við vorum búnir að gefa út þrjár plötur sjálfir og þær voru bara gefnar út í takmörkuðu upplagi. Þær seldust mjög hratt og voru uppseldar á hálfum mánuði. Það var mikil eftirspurn eftir þeim áfram en við nenntum ekki að standa í frekari útgáfu þannig að ég setti mig í samband við Senu og þeir höfðu áhuga á að gefa þessa plötu út,“ segir Sumarliði Hvanndal.

Hvanndalsbræður eru á leið í sjö daga tónleikaferð um Norðurland sem hefst í Dalvík í kvöld. Um miðjan júlí halda þeir síðan tónleika í Reykjavík. „Ég held að Reykvíkingar fatti okkur ekki því við erum hálfgerðir sveitagaurar. Þetta verður síðasti sjénsinn fyrir þá að fatta okkur. Ef þeir gera það ekki þá komum við ekkert aftur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×