Tónlist

Krossferð Jakobínarínu

Hafnfirska hljómsveitin gefur út sína fyrstu plötu í september.
Hafnfirska hljómsveitin gefur út sína fyrstu plötu í september.

Fyrsta breiðskífa hafnfirsku hljómsveitarinnar Jakobínarína hefur fengið nafnið The First Crusade, eða Fyrsta krossferðin. Kemur hún út hérlendis og í Bretlandi 24. september næstkomandi.

„Nonni [Jón Sæmundur] var með pælingar um að við værum í krossferð því við erum Íslendingar sem erum alltaf úti,“ segir söngvarinn Gunnar Ragnarsson um nafnið. „Vinir okkar spurðu síðan hvort við vildum ekki láta hana bara heita The First Crusade og okkur leist vel á það.“

Jón Sæmundur leikstýrði einmitt myndbandi hljómsveitarinnar við lagið Jesus og hefur jafnframt aðstoðað þá félaga í fatavali.

Jakobínarína er á leiðinni í tónleikaferð um Bretland eftir viku. Spila þeir félagar á tíu tónleikum á aðeins tveimur vikum og með þeim í för verður hljómsveitin Cajun Dance Party. „Þetta eru krakkar á okkar aldri sem voru að semja við stórt plötufyrirtæki. Þeir hafa vakið mikla athygli þarna úti,“ segir Gunnar.

Jakobínarína er um þessar mundir að semja lög fyrir B-hliðar á væntanlegum smáskífum sínum. Kemur sú næsta, This is an Advertisment, út 23. júlí næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×