Tónlist

Biggi fær góða dóma

Tónlist Bigga er líkt við heitan fleyg sem bræðir ís.
Tónlist Bigga er líkt við heitan fleyg sem bræðir ís.

Biggi úr Maus, einnig þekktur sem Bigital, fékk á dögunum góða dóma fyrir plötu sína Id í blaðinu Inside Entertainment.

Í dómnum segir meðal annars að tónlistin sé „sem heitur fleygur er bræðir ís og færir okkur sorg svo fallega að næstum verkjar undan henni“. Á öðrum stað í dómnum segir að platan í heild minni á litskrúðugt kúbískt málverk. Blaðamaður hvetur að lokum alla til að verða sér úti um plötuna.

Til gamans má geta þess að Biggi, sem hefur búið erlendis síðustu ár, er kominn aftur heim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.