Tónlist

Pollapönk í útvarpið

„Það segir sig sjálft að það verða misgóðir brandarar,“ segir Halli um brandarahornið í Pollapönki.
„Það segir sig sjálft að það verða misgóðir brandarar,“ segir Halli um brandarahornið í Pollapönki.

Tónlistarþátturinn Pollapönk hefur göngu sína á Rás 1 á föstudaginn kemur. Umsjónarmenn þáttarins eru Heiðar Örn Kristjánsson og Haraldur Freyr Gíslason, betur þekktir sem Heiðar og Halli úr Botnleðju. Þeir félagar gáfu út plötuna Pollapönk í fyrra en hún var hluti af lokaverkefni þeirra við Kennaraháskóla Íslands.

„Þátturinn verður aðallega fyrir 6-12 ára börn en það ættu samt allir að geta haft gaman að honum,“ segir Halli. „Við ætlum að spila góða músik og vera með almennan fíflagang.“

Meðal dagskrárliða í útvarpsþættinum má nefna, óskalög pollanna, ljóðahornið og tvennuna. „Við könnuðum landið og tókum viðtöl við börn til að athuga hvaða óskalög þau vildu helst heyra. Þau vilja ekki endilega hlusta á lög sem eru sérstaklega samin fyrir þau. Börn hlusta á hvað sem er,“ segir Halli. „Svo verðum við með ljóðahornið þar sem Þorlákur ljóðskratti kemur og fer með stökur og í tvennunni spilum við lag og á eftir að fá hlustendur að heyra upprunalegu útgáfuna.“

Þetta er í fyrsta sinn sem Halli og Heiðar spreyta sig í útvarpi en sá fyrrnefndi sá áður um tónlistarhorn í Stundinni okkar ásamt syni sínum þar sem þeir spiluðu lög og kynntu ýmis hljóðfæri fyrir yngstu kynslóðina.

Í Pollpönki verður einnig brandarahorn í umsjá þeirra félaga. „Það segir sig sjálft að það verða misgóðir brandarar í horninu,“ segir Halli og hlær.

Pollapönk verður á dagskrá Rásar 1 í sumar og hefst klukkan 19.40.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×