Innlent

Vörubretti brunnu í Fossvogsdal

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að athafnasvæði Skógræktar ríkisins í Fossvogsdal laust fyrir miðnætti þar sem reyk lagði til himins. Þar reyndist eldur loga í vörubrettastæðu og rusli og gekk greiðlega að slökkva eldinn áður en hann ylli tjóni á mannvirkjum. Fullvíst er talið að einhver hafi kveikt þar í en ekki er vitað hver hann er.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×