Tónlist

Vinnumiðlunin Future Future

Siggi Oddsson er einn þeira meðlima Future Future sem hafa tekið við lausum stöðum í starfandi hljómsveitum nýlega.
Siggi Oddsson er einn þeira meðlima Future Future sem hafa tekið við lausum stöðum í starfandi hljómsveitum nýlega.

„Ég held að það sé hinn óþrjótandi brunnur sköpunar hljómsveitarmeðlima Future Future sem veldur þessu," segir Siggi Oddsson, söngvari Future Future.

Glöggir menn hafa tekið eftir því að hljómsveitin Future Future virðist vera orðin eins konar vinnumiðlun fyrir starfandi íslenskar hljómsveitir.

Árni Hjörvar, bassaleikari sveitarinnar, gekk til liðs við hljómsveitina Kimono fyrir nokkrum mánuðum þegar Dóri bassaleikari hætti. Siggi Oddsson, söngvari Future Future, tók nýverið við bassanum af Þresti í Mínus eftir miklar mannabreytingar þar. Einnig er trommarinn Arnar Ingi byrjaður að spila með hljómsveitinni Retron.

 

Hljómsveitin Future Future er öðrum hljómsveitum gnægtabrunnur.

„Það er kannski hægt að líta á Future Future sem ágætis stökkpall til að koma sér í þekktar íslenskar hljómsveitir," segir Sigurður og hlær. Hann tók þó fram að ekki stæði til að hafa áheyrnarprufur fyrir nýja hljómsveitarmeðlimi í bráð.

Gítarleikari Future Future er þó enn á lausu og skemmtilegt að velta því fyrir sér hvaða hljómsveit grípi hann næst þegar staða losnar. Kannski Björk enduruppgötvi gítarsólóið og fái Eið með sér í lið fyrir næstu plötu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×