Bíó og sjónvarp

Brad leikur Bullitt

Leikarinn knái mun fara með hlutverk aðalgæjans í endurgerð á myndinni Bullitt.
Leikarinn knái mun fara með hlutverk aðalgæjans í endurgerð á myndinni Bullitt.

Brad Pitt mun leika aðalhlutverk í endurgerð á myndinni Bullitt frá árinu 1968. Pitt mun fara með hlutverk Franks Bullitt sem leikarinn Steve McQueen gerði ódauðlegan í myndinni. „Brad á margt sameiginlegt með McQueen. Hann elskar mótorhjól og er mikið fyrir hraðskreiða bíla. Þetta var því draumahlutverk fyrir hann,“ sagði heimildarmaður.



Í myndinni er fylgst með leynilögreglumanni sem leitar að morðingja sem drap samstarfsmenn lögreglumannsins. Myndin er þekkt fyrir að innihelda einn besta bílaeltingarleik í kvikmyndasögunni og er átt við þegar Mustang Bullitts brunar í gegnum hlykkjóttar götur San Fransisco borgar.

Brad var fyrst orðaður við hlutverkið árið 2003 en það er ekki fyrr en nú sem ákveður hefur verið að framleiða myndina. Næsta mynd Pitts sem kemur í kvikmyndahús er The Assassination of Jesse James by the Coward Robert Ford sem er væntanleg í kvikmyndahús seint á þessu ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.