Enginn gleiðgosaháttur 6. júlí 2007 01:00 Smekklegur að utan og notalegur íburður að innan. Fréttablaðið/GVA
Honda Accord executive býður af sér góðan þokka og kemur fyrir sem hógvær en kraftmikil skepna. Við fyrstu kynni virkaði Honda Accord executive svolítið eins og félagsheimilið í myndinni Með allt á hreinu. Það var lítið að sjá að utan en þegar inn var komið blasti risastór, glansandi salur við Stuðmönnum. Íburður Hondunnar er sambærilegur og það höfðaði til mín því það er alltaf ákveðinn klassi yfir því að vera ekki endilega með „blíngblíngið“, glysið og glamúrinn útum allt að hætti olíufursta. Excecutive-útgáfan af Hondu Accord er meðal annars búin leðursætum og sóllúgu sem er góð blanda, sér í lagi þegar veðurblíðan leikur við landsmenn. Á milli framsætanna er að finna mörg þægileg geymsluhólf og öruggur staður fyrir GSM-símann er undir útvarpstækinu en það er ótvíræður kostur, því hver kannast ekki við það að gemsinn flýgur undir bílsætið ef maður leggur hann óvart frá sér á rangan stað? Að aka Hondu Accord var nánast óaðfinnanlegt. Viðnám stýrisins hóflega eftirgefanlegt, hann er hljóðlátur og jafn snöggur upp og maður myndi búast við af bíl sem er búinn 2,4 lítra vél og 190 hestöflum. Skriðstillirinn var alger snilld þegar út fyrir höfuðborgina var komið og mjög auðvelt að slökkva og kveikja á honum, enda stjórnkerfið í stýrinu. Mælaborð Hondunnar er með óbeinni, þrívíðri lýsingu sem skilaði sínu án þess að trufla og er það í samræmi við áðurnefndan hógværðar klassa. Í nóvember í fyrra unnu tveir bílar frá Hondu (Honda Fit og Accord Hybrid) tvö efstu sætin í áreiðanleikakönnun sem gerð var á vegum CNN og almennt séð hefur þessi bíll notið mikilla vinsælda í Evrópu og Bandaríkjunum. Það er ekki að undra því Honda Accord er eftirgefanlegur og samviskusamur gæðingur sem lætur vel að stjórn og veldur eiganda sínum ekki vonbrigðum.
Bílar Mest lesið Vildi milljón pund, bauðst hálf og afþakkaði boðið Lífið Búa í einstakri þakíbúð í miðborginni en Halli keypti líka æskuheimilið sitt á móti Lífið „Er þetta kannski eitthvað sem þú vilt senda okkur í tölvupósti“ Lífið Ungfrú Danmörk fegurst allra Lífið Hundrað ára viðkvæmni Íslendinga: „Leið daglega yfir 40 til 50 manns“ Bíó og sjónvarp Fer ekki út úr húsi eftir greininguna Lífið Edrú í eitt ár Lífið Bjarki og Rósa orðin hjón Lífið Lára og Jens verða mamma og pabbi Lífið Fred again í sal en ekki á sviði: „Orðrómur sem við höfðum enga stjórn á“ Tónlist Fleiri fréttir „Eins og nýfráskilin kona á fjórða búbbluglasi“ Sjá meira