Tónlist

Jón Sæmundur opnar í dag

Jón Sæmundur Auðarson opnar í dag nýja búð á Laugavegi og hleypir af stokkunum útgáfufyrirtækinu Dead Records.
Fréttablaðið/Anton
Jón Sæmundur Auðarson opnar í dag nýja búð á Laugavegi og hleypir af stokkunum útgáfufyrirtækinu Dead Records. Fréttablaðið/Anton Fréttablaðið/Anton

Jón Sæmundur Auðarson opnar í dag nýja búð sem selur Dead-vörumerkið hans, rokkabillí-föt og silkiprentunarútbúnað. Auk þessa hefur hann stofnað tónlistarútgáfuna Dead Records.



„Mér líður eins og ég sé kominn aftur heim. Nú er það aftur bara rokk og ról og prenterí,“ segir Jón Sæmundur Auðarson sem opnar í dag búðina Dead í bakhúsi á Laugavegi 29, á móti Skífunni. Jón Sæmundur rak áður Nonnabúð og Liborius, sem hann seldi nú nýverið. „Ég náði orðið svo illa að sinna mínu. Bissnessinn tók alltof mikinn tíma.“



Nýja búðin er við hliðina á vinnustofu Jóns Sæmundar og hann segir það vera mjög gott að hafa allt svona á sama stað. Í búðinni verður hönnun frá Jóni Sæmundi og þrjú fatamerki sem hann tók með sér úr Liborius.

Breiðir út boðskapinn
Dead Records Hljómsveitin The Way Down er fyrsta bandið sem gefur út hjá hinu nýstofnaða útgáfufyrirtæki Dead Records.
Auk fatnaðarins er seldur ýmiss konar búnaður og efni til silkiprentunar fyrir þá sem vilja prenta á sín eigin föt. Þá selur hann boli á góðu verði sem hægt er að prenta á. „Ég vil koma þekkingunni áfram, breiða út boðskapinn.“ Jón Sæmundur stefnir líka á að fara að gera meira fyrir hljómsveitir eins og prenta á nokkra boli til að selja á tónleikum og á tónleikaferðalögum. PlötuútgáfaJón Sæmundur er ekki bara að opna nýja búð. „Við erum að fara af stað með tónlistarútgáfu sem er hluti af Dead-konseptinu, Dead Records. Fyrsta platan kemur út í dag.“

Jón Sæmundur segir að markmið útgáfunnar sé að gefa út góða tónlist og koma henni til fólks sem hefur áhuga á henni. „Við erum ekki að þessu til að græða peninga og ætlum að selja þetta eins ódýrt og við getum. Við ætlum ekki að gera neina útgáfusamninga og erum líka opnir fyrir öllu mögulegu, líka myndlistartengdara efni.“ The Way DownFyrsta platan sem kemur út hjá útgáfuarmi Dead er stuttskífan See you in Hell með hljómsveitnni The Way Down. Hana skipa Ari Eldon sem var meðal annars í hljómsveitunum Sogblettir og Dóp­skuld, Riina Finnsdóttir og Magnús Þorsteinsson. „Þetta er bjöguð popptónlist,“ segir Ari Eldon um tónlist sveitarinnar. „Ég vil hafa þetta nógu einfalt og hrátt. Mér er farið að leiðast of flóknir hlutir og þetta eru allt stutt og einföld lög.“

jara@frettabladid.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×