Tónlist

Stóra prófið hjá Interpol

Þriðja plata Interpol kemur út eftir helgi. Aðdáendur sveitarinnar bíða í ofvæni enda hefur lítið spurst út um ágæti plötunnar enn sem komið er.
Þriðja plata Interpol kemur út eftir helgi. Aðdáendur sveitarinnar bíða í ofvæni enda hefur lítið spurst út um ágæti plötunnar enn sem komið er.

Þriðja plata Interpol er væntanleg í búðir eftir helgi en þriðja plata ýmissa listamanna hefur oft reynst þeim þrautinni þyngri. Steinþór Helgi Arnsteinsson athugaði málið betur.



Hljómsveitin Interpol byrjaði fyrst að vekja athygli upp úr síðustu aldamótum og eftir stuttan túr um Bretland var sveitin meðal annars fengin til að spila hjá útvarpsmanninum John Peel hjá BBC. Hljómsveitin samdi loks við plötuútgáfuna Matador sem þykir með þeim virtari í sínum bransa (hefur haft á sínum snærum sveitir eins og Yo la tengo, Pavement, Belle & Sebastian og fleiri). Í lok árs 2002 leit síðan platan Turn on the Bright Lights dagsins ljós sem er án nokkurs vafa ein af betri plötum áratugarins.



Önnur platan, Antics, kom út tveimur árum seinna og fékk ekki nærri eins góðar viðtökur hjá gagnrýnendum. Nýlega var platan meira að segja valin ein af mestu vonbrigðum seinni ára hjá einum blaðamanni Stylus Magazine. Viðtökurnar voru samt sem áður engan veginn falleinkunn fyrir sveitina enda seldist Antics frekar vel og er þrátt fyrir allt stórfín plata sem hefur margt upp á að bjóða.

Hættu fjórum sinnum

Nú, nærri þremur árum eftir Antics, hefur Interpol kvatt Matador og er búið að flytja sig yfir til eins af plöturisunum. Ekkert óvenjulegt skref, ef út í það er farið, enda sveitin orðin eitt af stærstu nöfnunum í tónlistarsenunni í dag. Þetta hafa einnig margar stórkostlegar sveitir gert við fínan orðstír (Sonic Youth, Modest Mouse og R.E.M til þess að nefna örfáar).



Our Love to Admire heitir svo nýi gripurinn. Inniheldur ellefu lög og eiga þau að tryggja stöðu sveitarinnar og helst auðvitað að bæta um betur. Mörg bönd og margir tónlistarmenn hafa hins vegar lent í miklum vandræðum með þriðju breiðskífu sína. Interpol er samt þannig sveit að nánast engar líkur eru á því að nýja platan floppi. Mikið hefur samt gengið á hjá sveitinni enda viðurkenndi trommarinn Sam Fogarino í færslu á heimasíðu Interpol í fyrra að bandið hefði hætt fjórum sinnum á síðustu misserum.

Ekkert nema hvíslLítið hefur verið skrifað um nýju plötuna enda eru meðlimir Interpol þekktir fyrir andúð sína á fjölmiðlum. Aðalgítarleikari sveitarinnar, Daniel Kessler, sagði hins vegar nýlega í viðtali við NME að sveitin hefði notast við hljómborð frá upphafi til enda við gerð plötunnar, eitthvað sem Interpol hefur ekki gert áður. Þeir fáu miðlar sem skrifað hafa um plötuna til þessa lýsa henni sem mun útværari en fyrri plötur og hafi mun grófari áferð. Fyrsta smáskífa plötunnar, The Heinrick Maneuver, gefur til kynna að sveitin ætli að halda sínu striki og ber með sér þennan eitraða Interpol-keim. Kemst þó ekki upp á sama stall og mörg bestu lög sveitarinnar. Fleiri spurningarmerki

Sveitinni hefur tekist líka stórvel að koma í veg fyrir leka á plötunni og erfitt hefur verið að nálgast hana, nánast ómögulegt. Fáir dómar hafa einnig litið dagsins ljós. Níu af tíu hjá Drowned in Sound og eingöngu þrír af fimm hjá All Music Guide gefa manni lítið meira en eitt stórt spurningarmerki.



Sveitin hefur verið að spila vítt og breitt um Evrópu um þessar mundir og fer síðan til Bandaríkjanna í haust. Ég sá sveitina spila í Noregi um síðustu helgi og varð fyrir nokkrum vonbrigðum. Meðlimir virtust hálf áhugalausir og spiluðu eingöngu þrjú lög af nýju plötunni. Undir lokin náði sveitin samt að framkalla þá töfra sem ég tengi við Interpol. Gefur manni von um að nýja platan valdi ekki vonbrigðum en hún kemur í verslanir hérlendis næstkomandi mánudag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×