Tónlist

Ferskleiki í Astrópíu

Hljómsveitin er ein hinna ungu og fersku sem verða með lög í myndinni Astrópíu.
Hljómsveitin er ein hinna ungu og fersku sem verða með lög í myndinni Astrópíu.

Geisladiskurinn með lögunum úr myndinni Astrópíu er allur að smella saman og ljóst er að þar verður á ferðinni einvalalið úr röðum ungra og efnilegra tónlistarmanna. Þarna eru til dæmis tónlistarmenn og hljómsveitir eins og FM Belfast, Sprengjuhöllin, Motion Boys, Ultra Mega Technobandið Stefán, Lay Low, Wulfgang, Kaja og fleiri.



„Við óskuðum eftir lögum í Fréttablaðinu og fengum um það bil hundrað lög send. Við höfum svo verið að fara í gegnum þann banka og velja úr en einnig sóttumst við eftir lögum sumra hljómsveitanna," segir Júlíus Kemp, einn framleiðenda myndarinnar.



Auk hinna fersku og ungu flytjenda munu nokkrir gamlir og góðir vera með lög í myndinni. Þar má nefna Birgittu Haukdal, Stefán Hilmarsson, Helga Björns, Sverri Bergmann og fleiri. „Auk laganna verður líka alvöru kvikmyndatónlist í myndinni sem Þorvaldur Bjarni gerir. Við fengum Sinfóníuhljómsveit Búlgaríu til að spila skorið svo þetta lofar allt mjög góðu." Geisladiskurinn með lögunum úr myndinni kemur í búðir 22. júlí en myndin verður svo frumsýnd mánuði síðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×