Bíó og sjónvarp

Leyndarmálið afhjúpað

Ísleifur hefur tryggt sér útgáfuréttinn að íslenskri útgáfu myndarinnar The Secret.
Ísleifur hefur tryggt sér útgáfuréttinn að íslenskri útgáfu myndarinnar The Secret. MYND/Pjetur

Fyrirtækið Græna ljósið hefur tryggt sér útgáfuréttinn á kvikmyndinni The Secret með íslenskri talsetningu og texta. „Ég hef ekki séð aðra eins spennu og eftirspurn eftir nokkrum DVD-diski hér á landi,“ segir Ísleifur B. Þórhallsson, framkvæmdastjóri Græna ljóssins ,um The Secret.

„Það hefur myndast hálfgerður svartur markaður hérna og menn hafa keypt myndina í Englandi á uppsprengdu verði, 4700 krónur. Það að það sé svartamarkaðsstarf í gangi sýnir að það er gríðarleg eftirspurn eftir henni.“

Að sögn Ísleifs var myndin ekki sýnd í kvikmyndahúsum þegar hún kom út erlendis, heldur eingöngu á DVD. „The Secret er fyrst og fremst bíómynd um þetta blessaða lögmál aðdráttaraflsins. Það sem þú hugsar rætist. Það sem þú ert alltaf að hugsa um og einbeita þér að, það laðast að þér í lífinu,“ segir hann.

Stefnt er að útgáfu myndarinnar í seinni hluta september eða byrjun október og standa vonir til að aðstandendur myndarinnar eða leikendur komi hingað af því tilefni. „Oprah er búin að taka The Secret algjörlega upp á sína arma og myndin hefur verið að fá stanslausa umfjöllun hjá henni. Við vonumst til að fá hingað fólkið sem hefur verið hvað sýnilegast hjá henni,“ segir Ísleifur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.