Bíó og sjónvarp

Del Toro leikur Che Guevara

Del Toro fer 
með hlutverk Che Guevara í nýrri kvikmynd.
Del Toro fer með hlutverk Che Guevara í nýrri kvikmynd.

Leikarinn Benecio del Toro hefur tekið að sér hlutverk argentínska byltingarsinnans Ernesto Che Guevara í nýrri kvikmynd eftir Steven Soderbergh. Myndin, sem nefnist Guerilla, verður tekin upp á níu vikum víðs vegar um Spán. Verður eingöngu töluð spænska í henni.



Guerilla verður önnur kvikmyndin á skömmum tíma sem er byggð á ævi Guevara því fyrir þremur árum kom út myndin The Motorcycle Diaries með Gael Garcia Bernal í aðalhlutverki.



Benecio del Toro og Steven Soderberg störfuðu síðast saman við myndina Traffic með góðum árangri. Fékk del Toro Óskarsverðlaunin sem besti aukaleikarinn fyrir hlutverk sitt sem mexíkóskur lögreglumaður. Á meðal fleiri leikara í Guerilla verða Julia Ormond og Catalina Sandino.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×