Tónlist

Innipúkar gleðjast

Hljómsveitin Seabear er ein þeirra sveita sem spilar á Innipúkanum í ár. Hér er hún fyrir stækkun sveitarinnar.
Hljómsveitin Seabear er ein þeirra sveita sem spilar á Innipúkanum í ár. Hér er hún fyrir stækkun sveitarinnar.

Tónlistarhátíðin Innipúkinn fer fram í Reykjavík um helgina eins og undanfarin ár. Í þetta skiptið fer hátíðin fram á nýja tónleikastaðnum Organ í Hafnarstræti sem opnar þá með pompi og pragt.

 

Rapp hljómsveitin Forgotten Lores spilar á innipúkanum um helgina.

Hátíðin er sem fyrr hugsuð fyrir innipúka sem kjósa að vera heima við um verslunarmannahelgina og láta öðrum eftir að velkjast í regnvotum tjöldum með Bubbalög í bakgrunni.

Meðal þeirra hljómsveita sem koma fram eru Seabear, Forgotten Lores, Mr. Silla og Mongoose, Ghostigital og FM Belfast.

Miðasala fer fram í versluninni 12 Tónum á Skólavörðustíg og er afar takmarkað miðaframboð sökum stærðar staðarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×