Myndinni frestað 15. ágúst 2007 06:00 Rokkararnir síungu eru um þessar mundir á tónleikaferð um Evrópu.
Útgáfu heimildarmyndar Martin Scorsese um hljómsveitina The Rolling Stones hefur verið frestað þar til í apríl á næsta ári af markaðsástæðum. Myndin, sem heitir Shine a Light, átti upphaflega að koma út í september og hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Stones er um þessar mundir á miðri tónleikaferð um Evrópu og var því ákveðið að fresta útgáfunni til að sveitin gæti eytt meiri tíma í kynningu á myndinni. Shine a Light var tekin upp þegar Stones hélt tvenna tónleika Í New York á síðasta ári. Á meðal þeirra sem koma fram í henni eru Jack White úr rokkdúettnum The White Stripes og söngkonan Christina Aguilera. Meðlimir Stones eru með fleiri járn í eldinum því DVD-mynddiskur frá tónleikaferðinni A Bigger Bang kom út fyrr í mánuðinum auk þess sem söngvarinn Mick Jagger gefur út safnplötu frá sólóferli sínum í október.
Mest lesið Lifir eins og kóngur á 150-200 þúsund krónum á mánuði Lífið Guðni Th. orðinn afi Lífið Greindist með skyrbjúg eftir notkun megrunarlyfs Lífið Líkaminn þarf ekki að vera fullfrískur til að upplifa unað Lífið Herra Hnetusmjör og Sara selja lúxusíbúð innan við ári eftir kaupin Lífið Þakkar aðal sykurpabbanum fyrir allt Lífið Gellurnar fjölmenntu á gugguvaktina Lífið Fólk geti gengið frá kaupsamningum sjálft Lífið „Áttum mörg falleg móment þar sem við töluðum um framtíðina“ Makamál „Prinsessur eru líka sterkar og fyndnar“ Lífið Fleiri fréttir Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Stjörnum prýdd stikla Black Mirror Nolan sagður stefna á tökur á Íslandi Ljósbrot besta myndin en Snerting með flest verðlaun Happy Gilmore snýr aftur Harpa kvótadrottning aftur á skjáinn Ólafur Darri og félagar framleiða sína fyrstu teiknimynd Anora sigurvegari á Óskarnum Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein Sjá meira
Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein