The Bridge - þrjár stjörnur Jarþrúður Karlsdóttir skrifar 20. ágúst 2007 00:01 Fjallað er um viðkvæmt efni á heiðarlegan en fallegan máta. Myndin er áhrifamikil og vel gerð en líður fyrir endinn.
Falleg kvikmynd um erfitt efniHeimildarmyndin The Bridge fjallar um sjálfsvíg á Golden Gate-brúnni við San Fransisco. Brúin er sá staður í heiminum þar sem flestir binda enda á líf sitt. Á um það bil tveggja vikna fresti stekkur einhver fram af brúnni út í nær öruggan dauða.Leikstjórinn Eric Steel var við brúna í heilt ár frá sólarupprás til sólseturs og tók myndir af þeim sem fóru um brúna. Á þeim tíma festi hann 23 sjálfsvíg á filmu, þrátt fyrir að hafa alltaf tilkynnt brúaryfirvöldum þegar hann sá einhvern líklegan til að stökkva.Í myndinni er talað við vitni af brúnni, fjölskyldur og vini þeirra sem stökkva. Reynt er að komast að því hvað fái fólk til að gera þetta og einnig eru sýnd áhrif sjálfsvíganna á alla aðstandendur.Myndefnið frá brúnni er óhugnanlega fallegt. Náttúrufegurðin og þetta magnaða mannvirki skapa svo skýra andstæðu við kaldan raunveruleika sjálfsvíganna. Myndinni tekst merkilega vel að fjalla um þetta viðkvæma efni á heiðarlegan en fallegan máta. Það er hvorki gerð tilraun til að fegra né sverta viðfangsefnið. Hún gefur engin einföld svör en vekur þeim mun fleiri spurningar.Helsti gallinn við hana er bláendirinn. Þar er eins og leikstjórinn missi traustið á efninu í smástund og hæfileika áhorfenda til að skilja fína drætti og finnist hann þurfa að ljúka myndinni á smásparki í sköflunginn, svona til að undirstrika mál sitt. Í heildina er þetta samt áhrifamikil og mjög vel gerð mynd sem skilur engan eftir ósnortinn.
Mest lesið Lifir eins og kóngur á 150-200 þúsund krónum á mánuði Lífið Guðni Th. orðinn afi Lífið Greindist með skyrbjúg eftir notkun megrunarlyfs Lífið Líkaminn þarf ekki að vera fullfrískur til að upplifa unað Lífið Þakkar aðal sykurpabbanum fyrir allt Lífið Herra Hnetusmjör og Sara selja lúxusíbúð innan við ári eftir kaupin Lífið Gellurnar fjölmenntu á gugguvaktina Lífið Fólk geti gengið frá kaupsamningum sjálft Lífið „Prinsessur eru líka sterkar og fyndnar“ Lífið „Áttum mörg falleg móment þar sem við töluðum um framtíðina“ Makamál Fleiri fréttir Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Stjörnum prýdd stikla Black Mirror Nolan sagður stefna á tökur á Íslandi Ljósbrot besta myndin en Snerting með flest verðlaun Happy Gilmore snýr aftur Harpa kvótadrottning aftur á skjáinn Ólafur Darri og félagar framleiða sína fyrstu teiknimynd Anora sigurvegari á Óskarnum Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein Sjá meira
Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein