Tónlist

Feðgin sungu með Sniglabandinu

Magnús Þór ásamt dóttur sinni Þórunni uppi á sviði í Hveragerði með Sniglabandinu.
Magnús Þór ásamt dóttur sinni Þórunni uppi á sviði í Hveragerði með Sniglabandinu.

Tónlistarmaðurinn Magnús Þór Sigmundsson steig óvænt á svið með Sniglabandinu er þeir útvörpuðu beint frá Hveragerði síðastliðinn sunnudag. "Ég var bara staddur þarna og þeir kölluðu mig upp," segir Magnús Þór, sem söng með þeim lag sitt "Jörðin sem ég ann".

Dóttir hans Þórunn söng með honum viðlagið. Hún er söngkona í bresku hljómsveitinni Fields sem hefur vakið töluverða athygli að undanförnu.

Magnús, sem býr í Hveragerði, segist hafa hlustað á útvarpsþátt Sniglabandsins með öðru eyranu í sumar á Rás 2 og líkað vel.

"Þetta eru svo fínir tónlistarmenn að þeir komast upp með það sem þeir gera. Ég hef oft spilað með Pálma [Sigurhjartarsyni]. Við spiluðum lengi saman á litlum tónleikum í gamla daga." Magnús er að leggja lokahönd á nýja sólóplötu sem er væntanleg í haust. "Þetta verður allt saman nýtt efni. Ég ákvað að endurnýja kynni mín við sjálfan mig frá fyrri tíð.

Síðasta plata Magnúsar, Hljóð er nóttin, kom út fyrir tveimur árum og hafði að geyma öll vinsælustu lög hans. Auk "Jörðin sem ég ann" voru þar slagarar á borð við "Ísland er land þitt", "Sú ást er heit" og "Blue Jean Queen".






Fleiri fréttir

Sjá meira


×