Körfubolti

Spilað til úrslita í dag

Úrslitaleikir Powerade-bikarsins í körfubolta fara fram í Laugardalshöllinni í dag. Klukkan 14.00 mætast Haukar og Keflavík í kvennaflokki og klukkan 16.00 spila karlalið KR og Snæfells til úrslita.

Haukar eru handhafar kvennabikarsins síðustu tvö ár en Keflavík vann hann þrjú ár þar á undan. Karlalið KR er eina félagið af fyrrnefndum fjórum sem hefur aldrei unnið fyrirtækjabikar KKÍ en þetta verður fjórði úrslitaleikur karlaliðs félagsins. Snæfell vann þennan titil hins vegar árið 2004.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×