Viðskipti erlent

Tíu prósent iPhone-síma ólögleg

iPhone-símar Reiknað er með að tíu prósent af öllum iPhone-farsímum séu ólögleg.   Markaðurinn/AP
iPhone-símar Reiknað er með að tíu prósent af öllum iPhone-farsímum séu ólögleg. Markaðurinn/AP

Einn af hverjum tíu iPhone-margmiðlunarsímum frá Apple er seldur til fólks sem hefur í hyggju að afkóða símann og selja á svörtum markaði. Þetta segir í nýrri umfjöllun um símana, sem eingöngu er hægt að kaupa í Bandaríkjunum og á ekki að vera hægt að nota utan landsteinanna. Ekki er gert ráð fyrir að símarnir komi á markað í Evrópu fyrr en eftir mánuð.

Þegar síminn kom á markað greindu forsvarsmenn Apple frá því að þeir stefndu á að selja tíu milljónir farsíma af þessari gerð fyrir lok næsta árs um heim allan.

Þrátt fyrir sölubannið utan Bandaríkjanna er hægt að kaupa og hlaða niður hugbúnaði á netinu sem opnar símana en slíkur gjörningur gerir eigendum þeirra kleift að nota þá á hvaða símkerfi sem er, þar á meðal hérlendis. Samkvæmt nýlegri umfjöllun Vísis.is eru um fjörutíu ólöglegir margmiðlunarsímar frá Apple í notkun hér á landi sem hafa verið afkóðaðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×