Viðskipti erlent

Stærstu bankakaupin senn að veruleika

Eitt útibúa Abn Amro. Stærsti banki Hollands fellur senn í skaut þremur bönkum í Skotlandi, Belgíu og á Spáni gangi allt að óskum.
Eitt útibúa Abn Amro. Stærsti banki Hollands fellur senn í skaut þremur bönkum í Skotlandi, Belgíu og á Spáni gangi allt að óskum. MYND/AFP

Þrír bankar frá Belgíu og Spáni undir forystu Royal Bank of Scotland (RBS) hafa tryggt sér samþykki handhafa 86 prósenta hlutabréfa í ABN Amro, stærsta banka Hollands, fyrir yfirtöku á honum. Kaupverð nemur tæpum 72 milljörðum evra, rúmum 6.200 milljörðum íslenskra króna og allt útlit er fyrir að bankarnir taki þátt í einhverjum stærstu fyrirtækjakaupum í evrópskum fjármálaheimi til þessa.

Þótt vilyrði sé fyrir kaupunum innan meirihluta hluthafahóps ABN Amro munu hluthafarnir senda frá sér tilkynningu á föstudag þar sem fram kemur hvort öllum skilyrðum fyrir yfir­töku sé fullnægt svo kaupin nái fram að ganga.

Gengi bréfa í Royal Bank of Scotland féll um heil þrettán prósent strax í vikubyrjun enda reikna flestir með því að kaupin séu of stór biti fyrir bankana, jafnvel þótt þeir séu þrír um hituna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×