Lífið

Cliff bauð öllum í kvöldmat

Tónlistarmaðurinn Cliff Richard heldur tónleika í Laugardalshöll í kvöld.
Tónlistarmaðurinn Cliff Richard heldur tónleika í Laugardalshöll í kvöld.

Sir Cliff Richard, sem heldur tónleika í Laugardalshöll í kvöld, bauð hópnum sem hefur verið með honum á tónleikaferð um heiminn í mat á Austur-Indíafélaginu í fyrrakvöld.

„Þetta eru síðustu tónleikarnir í ferðinni. Hann er búinn að vera í sex mánuði að flækjast með þessum 24 manna hópi og bauð þeim í mat,“ segir Guðbjartur Finnbjörnsson tónleikahaldari. Væntanlega hefur matarboðið kostað Richard skildinginn, enda er Austur-Indíafélagið meðal dýrustu og bestu veitingastaða borgarinnar.

Í stuttu spjalli við Fréttablaðið vildi Manoj Kumar, framkvæmdastjóri hjá Austur-Indíafélaginu, ekki gefa upp hversu mikið máltíðin hafi kostað en tók það fram að Richard hafi átt góða kvöldstund með samstarfsfólki sínu. Snæddu þau m.a. dýrindis íslenskt lambakjöt.

Humar í hádegismatÍ hádeginu í gær gæddi Richard sér síðan á humri á veitingastaðnum Við fjöruborðið á Stokkseyri, áður en ferðinni var heitið á Gullfoss og Geysi, eins og erlendra ferðamanna er siður. Að sögn Guðbjarts hefur Richard hrifist mjög af Íslandi, þó að honum hafi ekki litist á blikuna fyrst þegar hann leit út um gluggann í gærmorgun á snævi þakta jörðina.

Richard mun ásamt stórri hljómsveit, taka flest sín þekktustu lög á tónleikunum, þar á meðal Summer Holiday, Bachelor Boy, The Young Ones og We Don"t Talk Any More. Engu verður til sparað til að gera þessa tónleika sem glæsilegasta og verða m.a. risaskjáir settir upp hvor til sinnar hliðar við sviðið. Eftir tónleikana mun Richard væntanlega taka sér ársfrí frá tónleikahaldi. Stólar fyrir þreytta gesti

Á tónleikunum verða stólar í anddyrinu fyrir þá sem vilja hvíla sig. „Hann byrjar klukkan átta og síðan verður smá hlé. Þetta verður búið kannski um hálfellefuleytið, þannig að það verður fullt af stólum fyrir þá sem eru standandi. Ég vil gera þetta eins þægilegt fyrir fólk og hægt er,“ segir Guðbjartur.

Uppselt er í stúku á tónleikana en enn eru til miðar í stæði og fer miðasalan m.a. fram á midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.