Hinn „þögli“ meirihluti 22. október 2007 00:01 Íslenska þjóðin skiptist í tvennt; minnihluta og þöglan meirihluta. Í þögla meirihlutanum sem rúmlega 60 prósent þjóðarinnar tilheyra eru kommúnistar, laumukommúnistar, kratadindlar, græningjar, eyðingaröfl, hommar, mussukerlingar, femmur og trukkalessur - auk framsóknarhyskis sem skiptist í jarðálfa í framsóknarfjósum og samviskulausa mafíósa sem lifa eins og rottur í holræsakerfi sérhagsmuna. ÞESSI sundraði hópur er á móti frelsi og berst fyrir jafnrétti með því að koma í veg fyrir að dugmiklir einstaklingar fái að njóta sín. Öfund er svo mikil að stjórnmálaflokkar innan meirihlutans geta ekki starfað saman af ótta við að samstarfsaðilar njóti góðs af samstarfinu. ÖFUGT við hinn sundurlynda meirihluta er minnihlutinn algjörlega ópólitískur og stendur saman um einn Foringja, einn Flokk og eitt vandað Minningargreinablað sem er í eigu góðra kapítalista en ekki óuppdreginna götustráka. Til að efla framfarir hefur minnihlutinn einkavætt mestalla þá sameign sem meirihlutinn hafði nurlað saman enda er það eðli fjármagns að vera því máttugra sem það er í færri höndum. Þorskur hefur margfaldast í verði síðan hann slapp úr sameignarbúrinu, og sama mun gerast með orkuna í iðrum jarðar. ÞESSI samstæði minnihluti trúir á frelsi og framfarir, áfengi í matvöruverslunum, álver, útrásir, kaupréttarsamninga, greiningardeild lögreglunnar, ættingja og vini í Hæstarétti og umfram allt trúir hann á Flokkinn sinn sem telur 50 þúsund flokksfélaga. Kjörorð Flokksins er: Enginn maður er svo merkilegur að Flokkurinn sé ekki miklu merkilegri! TIL GAMANS er forseti lýðveldisins ævinlega valinn úr meirihlutanum. Síðan er flogið með hann í einkaþotu þar til hann fattar hjá hverjum hann vinnur í raun og veru. Sömuleiðis eru máttlitlir meirihlutaflokkar stundum ráðnir í aðstoðarstarf hjá minnihlutanum, því að þegar eitthvað klúðrast er gott að geta rekið aðstoðarmennina. Á Íslandi hefur minnihlutinn ráðið svo lengi sem elstu menn muna og sagt meirihlutanum að halda kjafti. Því kalli er meirihlutinn samtaka um að hlýða og er þess vegna kallaður „hinn þögli" meirihluti. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Loftslagsávinningur Coda Terminal er gífurlegur Sigurður Loftur Thorlacius Skoðun Skaðinn í leyndri meðferð á heimilum Matthildur Björnsdóttir Skoðun Að verða fórnarlamb íslenskra skattyfirvalda Arnar Pálsson Skoðun „Eru ekki allir pínu einhverfir í dag?“ Andrea Ólafsdóttir Skoðun Bóluefni eða veirur Ágúst Kvaran Skoðun Tilgangur atvinnurekstrarbanns Lárus Sigurður Lárusson Skoðun Betri leið til að velja keppendur inn á Ólympíuleika Pawel Bartoszek Skoðun Af glyðrugangi eftirlitsstofnana Ester Hilmarsdóttir Skoðun 3.200 aumingjar (mín skoðun) Ole Anton Bieltvedt Skoðun Um vanda stúlkna í skólum Ragnar Þór Pétursson Skoðun