Einstürzende Neubauten tók á tvö hundruð dögum upp nýja plötu í eigin hljóðveri. Útgáfan er fjármögnuð með sölu áskrifta að vefsvæði hljómsveitarinnar www.neubauten.org. Þar komast áskrifendur í margvíslegt efni og upptökur sem ekki fara í almenna dreifingu. Nýja platan, sem heitir Alles wieder offen, kom út rétt fyrir mánaðamótin síðustu.
Blixa Bargeld, forkólfur sveitarinnar, gengur svo langt að segja frekari tónlistarútgáfu hljómsveitarinnar háða því að haldið verði uppteknum hætti með samstarfi við aðdáendur. Síðast gaf sveitin út plötu með hefðbundnum hætti árið 2004, en í millitíðinni hafa ótal hliðarverkefni litið dagsins ljós.
„Þrátt fyrir að vera gefandi í sjálfu sér og styðja við sköpunarferli Alles wieder offen eru þessu verkefni fyrst og fremst hliðarafurð byltingarkenndrar hugmyndar, sem er veftónleikar okkar á www.neubauten.org. Alles wieder offen er gefin út án nokkurrar aðkomu plötufyrirtækis. Upptökurnar voru fjármagnaðar með sölu áskrifta að www.neubauten.org en áskrifendur fá í staðinn sérstaka styrktarútgáfu (Supporter Edition) af hljómplötunni, ýmist með eða án DVD-disks eftir því hvaða áskriftarleið hefur verið valin. Án áskriftarstuðningsins væri Alles wieder offen ekki til,“ segir Blixa á neubauten-vefnum.
Tónlist