Erlent

Tyrkir fella fjölmarga kúrda

Óli Tynes skrifar

Tyrkir segjast hafa fellt fjölmarga kúrdiska skæruliða í árás yfir landamæri Íraks í dag. Kúrdiski verkamannaflokkurinn svokallaði á höfuðstöðvar sínar í Norður-Írak, rétt við landamærin. Kúrdar hafa drepið fjölmarga Tyrki í árásum yfir landamærin undanfarna mánuði.

Talsmaður tyrkneska hersins segir að 100 manna sérsveit úr hernum hafi ráðist inn í Írak, studd orrustuþyrlum og stórskotaliði.

Tyrkir hafa safnað saman 100 þúsund manna liði við landamærin og hafa hótað að gera stórárás ef kúrdar láti ekki af árásum sínum.

Bandaríkjamenn reyna hvað þeir geta til þess að halda aftur af þeim, þar sem norðurhéruð Íraks eru þau einu þar sem ríkir sæmilegur stöðugleiki og friður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×