Bíó og sjónvarp

Away From Her - Fjórar stjörnur

Away From Her
Away From Her

Kvikmyndin Away From Her segir frá miðaldra hjónum, Fionu og Grant, takast á við Alzheimer-sjúkdóm Fionu og innlögn hennar á hjúkrunarheimili fyrir Alzheimer-sjúklinga. Við fylgjumst með Fionu missa minnið smám saman og erfiðleika þeirra hjóna við að sætta sig við sjúkdóminn og afleiðingar hans.

Away From Her er fyrsta myndin í fullri lengd sem Sarah Polley leikstýrir. Sarah er tæplega þrítug, margverðlaunuð leikkona, sem hefur áður gert nokkrar stuttmyndir.

Polley tekst einstaklega vel að fjalla um þetta viðkvæma efni af virðingu og án þess að vera væmin eða of dramatísk. Í grunninn er þetta einfaldlega saga um fólk sem er að gera sitt besta til að takast á við lífið í skugga illviðráðanlegs sjúkdóms.

Leikurinn í myndinni er góður. Aðalleikkonan Julie Christie sýnir snilldarleik. Henni tekst að túlka andlega hnignun Fionu á einkar sannfærandi hátt. Aðrir standa nokkuð í skugganum af henni en skila sínu áfallalaust.

Söguþráðurinn er að mörgu leyti fyrirsjánlegur en það kemur ekki að sök því ekki er verið að elta einhverjar klisjur. Persónusköpunin er það sterk að það sem er fyrirsjánlegt verður samt aldrei ósannfærandi.

Away from her er því þegar á heildina er litið góð mynd um manneskjur í erfiðum aðstæðum.

-Jarþrúður Karlsdóttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.