Erlent

Önnur loftárás Bandaríkjamanna á Sómalíu

Bandarískir embættismenn sögðu í dag að gerð hefði verið loftárás á Suðurhluta Sómalíu fyrr í vikunni. Þetta er önnur árás Bandaríkjamanna á íslamska öfgamenn. Fyrri árásin var fyrir um það bil tveimur vikum en þá sögðu embættismenn aðgerðina vera gegn öfgamönnum al-Qaida. Talsmaður varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna neitaði að tjá sig um málið, en ekki er fullvíst hvað eða hverjir voru takmark árásarinnar nú.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×