Norður-Kórea og Íran í samstarf 24. janúar 2007 17:17 Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, er kominn í samstarf með með Norður-Kóreu til þess að flýta kjarnorkuáætlun lands síns. MYND/AP
Norður-Kórea er að hjálpa Írönum að undirbúa neðanjarðarsprengingu á kjarnorkuvopnum, svipaðri þeirri og Norður-Kóreumenn framkvæmdu sjálfir á síðasta ári. Þetta kemur fram á vefsíðu breska dagblaðsins Telegraph í dag. Samkvæmt samningum sem löndin tvö hafa gert sín á milli hafa Norður-Kóreumenn samþykkt að deila öllum upplýsingum um prófanir sínar með vísindamönnum Írana. Það á að hjálpa írönsku vísindamönnum að flýta kjarnorkuáætlun Írana svo mikið að þeir geti sprengt tilraunasprengju fyrir lok þessa árs. Háttsettur evrópskur varnarmálasérfræðingur sagði frá þessu. Hann skýrði einnig frá því að óstaðfestar fregnir hermdu að hópur íranskra vísindamanna hefði verið viðstaddur tilraunasprengingu Norður-Kóreumanna. Hann staðfesti einnig að háttsettir vísindamenn ferðuðust nú oftar á milli landanna tveggja og að aukin starfsemi væri í kjarnorkuverum Írana það sem af væri ári. Samkvæmt fregnum voru það lítil viðbrögð alþjóðasamfélagsins við tilraunasprengingum Norður-Kóreumanna sem urðu til þess að Íranar ákváðu að hraða áætlunum sínum.
Erlent Fréttir Mest lesið Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Innlent Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Innlent Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Innlent Svona var blaðamannafundur nýs meirihluta í Reykjavík Innlent Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Innlent Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Innlent Svona skipta oddvitarnir stólunum Innlent Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Innlent Verkföll hafin í sex skólum Innlent Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Leiðtogi skuggalegs költs handtekinn Myndbönd sýna flugvélina lenda harkalega og enda á hvolfi Taldi sig vera að drepa Palestínubúa sem reyndust vera Ísraelar Sjá meira