Nýr þátttakandi í leikjatölvustríðinu 10. mars 2007 08:00 Playstation 3 Tölvan er svört á lit, kúpt og nokkuð stór í sniðum. Útgáfan sem seld er í Evrópu hefur 60 gígabæta harðan disk, möguleika á þráðlausu neti og minniskortalesara auk Blu-Ray drifsins sem er í öllum útgáfum tölvunnar. Stýripinnarnir tengjast vélinni með Bluetooth þráðlausri tengingu og háskerpusjónvörp tengjast í gegnum HDMI-tengi á tölvunni.
Henni hefur verið seinkað, breytt og seinkað aftur, en PlayStation 3 leikjatölvan er loksins að koma. Þann 23. mars hefst sala á tölvunni sem tekur við af vinsælustu sjónvarpsleikjatölvu í heimi, PlayStation 2. Dagurinn sem evrópskir tölvuleikjaunnendur hafa beðið eftir svo lengi er við það að renna upp. Upphaf og Evrópuseinkun PlayStation 3 var fyrst kynnt almenningi um mitt ár 2005, á tölvuleikjaráðstefnunni E3 í Bandaríkjunum. Upphaflega átti hún að koma út vorið 2006, en útgáfudeginum var seinkað þar til í nóvember sama ár. Átti hún þá að koma út í Bandaríkjunum, Evrópu og Japan samtímis. Þegar á hólminn var komið hopaði Sony, framleiðandi tölvunnar, enn á ný og frestaði útgáfunni í Evrópu um fimm mánuði, við óblíðar viðtökur Evrópubúa. Vandræði við fjöldaframleiðslu á Blu-Ray diskadrifunum voru sögð ástæðan fyrir því að aðeins Japanar og Bandaríkjamenn fengu að njóta tölvunnar í nóvember 2006, en Evrópa sat á hakanum. Nýjungar PlayStation 3 er mun öflugri en fyrirrennari hennar og státar af mörgum nýjungum. Þar ber einna helst að nefna Blu-Ray drifið sem kemur í stað DVD-drifsins á PS2 tölvunni, en Blu-Ray diskar geta geymt allt að fimm sinnum meiri gögn en DVD-diskarnir. Leikirnir fyrir vélina verða flestir í háskerpu, en það þýðir að upplausnin er mun hærri en í „venjulegum“ leikjum. Bíómyndir á Blu-Ray diskum eru einnig í háskerpuupplausn. Til þess að nýta háskerpuna þarf þó sjónvarp sem ræður við að sýna efni í slíkri upplausn. Dýrt spaug Verðið á tölvunni er ein af þeim nýjungum sem hafa vakið litla hrifningu hjá fólki. Í Evrópu mun premium-útgáfa vélarinnar kosta 600 evrur, en ódýrari útgáfan verður ekki gefin út hér til að byrja með. Til samanburðar kostar Xbox 360, einn keppinauta PlayStation 3 í leikjatölvustríðinu, 300-400 evrur eftir útgáfum. Nintendo Wii, þriðji þátttakandinn, kostar 250 evrur. Hér á Íslandi má búast við að vélin kosti milli 60 og 70 þúsund krónur, en verslanir BT, Elko og Max verða allar með leikjatölvuna til sölu. Í premium-útgáfunni er sextíu gígabæta harður diskur, möguleiki fyrir þráðlausa nettengingu og minniskortalesari auk Blu-Ray drifsins sem er í öllum útgáfum. Barist um örfá eintök Útgáfa PlayStation 3 í Bandaríkjunum einkenndist fyrst og fremst af gríðarlegri eftirspurn og langt í frá nægu framboði. Þetta ástand hafði það í för með sér að tækifærissinnar sáu sér leik á borði og biðu dögum saman í biðröð eftir tölvunni, og seldu hana um leið á uppboðsvefnum eBay með hundrað prósenta álagi eða svo. Fjölmennar biðraðir þar sem enginn ætlaði sér í rauninni að nota sjálfa tölvuna voru ekki óalgeng sjón á útgáfudeginum. Nokkru eftir útgáfudaginn tók að lægja og ástandið batnaði. Í árslok hafði Sony selt tæpar tvær milljónir eintaka, þar af um 750.000 í Bandaríkjunum. Leikirnir skipta mestu máli Það skiptir litlu máli hversu öflug leikjatölva er ef leikirnir sjálfir standa ekki undir kröfum. Fimmtán leikir komu út á sama tíma og tölvan í Bandaríkjunum og Japan, en alls verða rúmlega fjörutíu leikir á boðstólum þegar vélin fer í sölu í Evrópulöndum. Einna vinsælustu leikirnir eru skotleikurinn Resistance: Fall of Man, bardagaleikirnir Virtua Fighter 5 og Fight Night Round 3 og bílaleikurinn MotorStorm, sem kom út nú fyrir nokkrum dögum. Leikjaunnendur eru þó eflaust spenntastir fyrir Grand Theft Auto IV, sem kemur út í október, og Metal Gear Solid 4: Guns of the Patriots, sem kemur út einhvern tímann á þessu ári. Ekki góð kaup fyrir alla Fyrir þá sem eiga ekki háskerpusjónvarp eru kostir PS3 nokkru færri en hjá hinum. Vissulega er hægt að spila alla leikina án vandkvæða, en þeir eru í mun lægri upplausn og líta alls ekki jafn vel út. Hið sama gildir um Blu-Ray myndir, þær munu í besta falli líta jafnvel út og myndir á DVD-diskum. Tölvan nýtist því eigendum háskerpusjónvarps mun betur en þeim sem ekki eru svo heppnir. Áhugasamir ættu að taka þetta með í reikninginn þegar ákveðið er hvort kaupa á vélina eða ekki.
Leikjavísir Mest lesið Helgi Björns tryllti lýðinn á 40 ára afmæli Gagnrýni Ferðast umhverfis jörðina á 38 dögum Lífið Stjörnulífið: Sjóðheitar stjörnur í fimbulkulda Lífið Ísak og Karítas orðin foreldrar eftir bráðakeisara Lífið Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga með nýja sketsaseríu um jólin Bíó og sjónvarp Adele kveður sviðið um óákveðinn tíma Lífið Frambjóðendur stigu trylltan dans með unga fólkinu Lífið Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Hvað eru konur í framboði að hlusta á? Lífið Fleiri fréttir GameTíví: Skoða gjörbreyttan Warzone Dragon Age Veilguard: Fimmtán ára ævintýri lýkur PlayStation 5 Pro: Eina leiðin til að spila, ef þú tímir því Sverrir Bergmann snýr aftur í GameTíví GameTíví: Berjast gegn hjörðum uppvakninga Horizon Zero Dawn uppfærður: Besta tækifærið til að stökkva í sögu Aloy CCP kynnir nýjan leik til sögunnar COD Black Ops 6: Myrkraverkin hafa sjaldan verið betri Steindi og Gunnar Nelson spila með GameTíví Íslendingar berjast hjá GameTíví GameTíví: Koma vetrarbrautinni til bjargar í Space Marine Until Dawn: Flott endurgerð á hryllilegum leik GameTíví: Jökull leiðir strákana til sigurs Sjá meira