Erlent

Bíll sprengdur við sjúkrahús í Paisley

Sprengjuérfræðingar bresku lögreglunnar sprengdu bíl við Royal Alexandra spítalann í Paisley fyrir stundu. Bifreiðin þótti grunsamleg og var talin tengjast árásinni á flugvöllinn í Glasgow. Svæðið í kringum spítalann hefur verið girt af og er starfsfólki og sjúklingum gert að vera um kyrrt.

Slysavarðstofan á spítalanum beinir sjúkrabílum annað en tekið er á móti fólki sem kemur þangað á eigin vegum. Aðrar deildir spítalans eru starfandi. Óvíst er hvenær svæðið verður opnað að nýju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×