Erlent

Írak: Sprengjuárásir kostuðu minnst 80 manns lífið

Talið er að minnst 80 hafi týnt lífi og 150 særst í þremur sprengingum á markaði í miðborg Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun.

Ár er liðið í dag frá sprengjuárás á guðshús sjía-múslima í borginni Samarra. Sú árás varð kveikjan að átökum trúarhópa í landinu sem enn sér ekki fyrir endann á og hafa kostað mörg þúsund mannslíf í mánuði hverjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×