Erlent

Mamma morðingi

Óli Tynes skrifar
Amanda Reagan Smith.
Amanda Reagan Smith. MYND/AP

Bandarísk kona sem sagði að bílþjófur hefði myrt sjö ára gamlan son sinn hefur sjálf verið handtekin fyrir verknaðinn.

Amanda Reagan Smith sagði lögreglunni fyrir þrem mánuðum að bílþjófur vopnaður hnífi hefði neytt sig til þess að aka á afvikinn stað. Þar hefði hann læst dyrum bílsins og kæft drenginn með kodda.

Gríðarleg leit var gerð að morðingjanum en hún bar ekki árangur. Í gær var svo Amanda Reagan Smith sjálf handtekinn og sökuð um að hafa myrt son sinn.

Lögreglustjórinn í Greenville í Suður-Karólínu, þar sem þetta gerðist, sagði að rannsóknin hefði leitt til þeirrar niðurstöðu að móðirin væri sek.

"Við erum sannfærð um að við erum með sökudólginn í gæslu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×