Innlent

Notar kortið ekki prívat

Borgar bara það sem er á kostnað ráðuneytisins með kreditkorti ríkisins, að sögn Guðna Ágústssonar landbúnaðarráðherra.
Borgar bara það sem er á kostnað ráðuneytisins með kreditkorti ríkisins, að sögn Guðna Ágústssonar landbúnaðarráðherra.

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir það augljóst að hann noti kreditkort ráðuneytisins, sem er á hans nafni, til að greiða þegar útgjöldin eru augljóslega á vegum ráðuneytisins.

Guðni segist nota kortið til dæmis til að greiða fyrir ferðalög, gistingu og mat á ferðalögum innanlands og hótelgistingu erlendis, leigu á fundasölum og veitingar á fundum sem ráðherrann heldur um landbúnaðarmál hér heima.

„Ég borga ekki fyrir neitt nema það sem er á kostnað ráðuneytis­ins. Ég nota það ekki fyrir mig prívat," segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×