Erlent

Enn leitað að flaki flugvélar

MYND/AP

Leitin að flugvélinni sem hvarf í Indónesíu á mánudaginn var hélt áfram áfram í morgun. Flugvélar, skip og fótgönguliðar tóku þátt í leitinni. Yfirvöld í Indónesíu skýrðu frá því á þriðjudag að flak vélarinnar hefði fundist ásamt 12 eftirlifendum slyssins en þegar til kom reyndust þær fregnir rangar.

Mikil reiði er meðal almennings vegna þessa og leggja stjórnvöld því enn meiri áherslu á finna flak vélarinnar. Sérfræðingar um flugslys segja að stundum hafi flugvélar ekki fundist í fleiri daga eftir að þær hverfa en að það sé engu að síður sjaldgæft.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×