Fjögur ár Magnús Már Guðmundsson skrifar 23. mars 2007 05:00 Skömmu eftir miðnætti að íslenskum tíma þann 20. mars 2003 hófst stríð í Írak. Stuðningur Íslands við innrásina var ákveðinn af tveimur mönnum sem sýndi og sýnir ótrúlega vanvirðingu tveggja siðlausra manna gagnvart lýðræði í landinu og um leið þjóð sinni. Gjörningurinn var framkvæmdur án þess að utanríkismálanefnd Alþingis kæmi saman en skv. 24. grein þingskapa á nefndin að vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um „meiri háttar utanríkismál enda skal ríkisstjórnin ávallt bera undir hana slík mál, jafnt á þingtíma sem í þinghléum.“ Einhverjir myndu telja stuðning Íslands við stríð vera meiri háttar utanríkismál. Aðrir ekki. Sífellt fleirum verður ljóst hvaða hörmungar stríðið hefur kallað yfir írösku þjóðina, en ekkert lát virðist vera á óöldinni í landinu. Engu að síður telur Sjálfstæðisflokkurinn ákvörðunina um stuðning íslensku þjóðarinnar við innrás Bandaríkjanna í Írak hafa verið rétta. Forysta Framsóknarflokksins veit ekki í hvorn fótinn hún á að stíga og hefur Jón Sigurðsson farið í nokkra hringi frá því að hann var kjörinn formaður flokksins. Á sama tíma hefur afstaða Samfylkingarinnar og stjórnarandstöðuflokkanna ætíð legið fyrir. Mánudaginn 19. mars kl. 20 munu hinir staðföstu stríðsandstæðingar efna til baráttusamkomu í Austurbæ. Þar verður innrásinni mótmælt og þess krafist að íslensk stjórnvöld axli ábyrgð vegna sorglegs stuðnings þeirra við hina ólöglegu innrás. Höfundur er formaður Ungra jafnaðarmanna. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Magnús Már Guðmundsson Mest lesið Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Mengum meira Heiðar Guðjónsson Skoðun Carbfix: Stærsta framlag Íslands í loftslagsmálum heimsins Sævar Freyr Þráinsson Skoðun Hvað verður um Kára? Helga Sigrún Harðardóttir Skoðun Að óttast blokkir Ásta Logadóttir Skoðun Af hverju leka gluggar fyrr en áður? Böðvar Bjarnason Skoðun Verður pláss fyrir börnin? Hörður Svavarsson Skoðun Coda Terminal hefur ekki áhrif á neysluvatnsból höfuðborgarsvæðisins Sigrún Tómasdóttir Skoðun Sigmundi Davíð svarað Björn Bjarnason Skoðun Þegar fórnarlamb verður böðull Sigurður Skúlason Skoðun Skoðun Skoðun Carbfix: Stærsta framlag Íslands í loftslagsmálum heimsins Sævar Freyr Þráinsson skrifar Skoðun Sigmundi Davíð svarað Björn Bjarnason skrifar Skoðun Coda Terminal hefur ekki áhrif á neysluvatnsból höfuðborgarsvæðisins Sigrún Tómasdóttir skrifar Skoðun Líf og dauði leikur á hnífsegg Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Mengum meira Heiðar Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað verður um Kára? Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Að eiga tertuna og borða hana líka – svar til formanns Hildur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Hik er sama og tap Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Af hverju leka gluggar fyrr en áður? Böðvar Bjarnason skrifar Skoðun Hluta þjóðarinnar hent út í kuldann – hinn baðar sig í sólinni Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Að óttast blokkir Ásta Logadóttir skrifar Skoðun Engin gúrka hjá Blaðamannafélaginu Sigríður Dögg Auðunsdóttir,Freyja Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Stórnotendur eru kjölfestan í íslenska raforkukerfinu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Ert þú í góðu netsambandi? Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Evrópa og myrkrið framundan Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Heilræði fyrir Nýhaldið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar Skoðun Glútenlaust gull á grillið Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Kaupin á eyrinni Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Lokunaruppboð í Kauphöllinni Baldur Thorlacius skrifar Skoðun Viðreisn mun leggja fram tillögu um íbúakosningu um Coda Terminal verkefnið í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson skrifar Skoðun Ferðatryggingar og val á kreditkorti Svandís Edda Hólm Jónudóttir skrifar Skoðun Af hverju að byggja Coda Terminal? Ólafur Elínarson,Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Hljóð úr horni Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun ESB fyrir almenning Oddný G. Harðardóttir skrifar Skoðun Strámaðurinn mikli Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Árið er 2024 Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Samkeppni í nýju ljósi Páll Hermannsson skrifar Skoðun Það er verið að grafa dýpri fátæktargjá Rúnar Sigurjónsson skrifar Skoðun „Hæ ástin, þarf að millifæra, getur þú samþykkt beiðnina?“ Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Algeng þvæla um Evrópusambandið Jón Frímann Jónsson skrifar Sjá meira
Skömmu eftir miðnætti að íslenskum tíma þann 20. mars 2003 hófst stríð í Írak. Stuðningur Íslands við innrásina var ákveðinn af tveimur mönnum sem sýndi og sýnir ótrúlega vanvirðingu tveggja siðlausra manna gagnvart lýðræði í landinu og um leið þjóð sinni. Gjörningurinn var framkvæmdur án þess að utanríkismálanefnd Alþingis kæmi saman en skv. 24. grein þingskapa á nefndin að vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um „meiri háttar utanríkismál enda skal ríkisstjórnin ávallt bera undir hana slík mál, jafnt á þingtíma sem í þinghléum.“ Einhverjir myndu telja stuðning Íslands við stríð vera meiri háttar utanríkismál. Aðrir ekki. Sífellt fleirum verður ljóst hvaða hörmungar stríðið hefur kallað yfir írösku þjóðina, en ekkert lát virðist vera á óöldinni í landinu. Engu að síður telur Sjálfstæðisflokkurinn ákvörðunina um stuðning íslensku þjóðarinnar við innrás Bandaríkjanna í Írak hafa verið rétta. Forysta Framsóknarflokksins veit ekki í hvorn fótinn hún á að stíga og hefur Jón Sigurðsson farið í nokkra hringi frá því að hann var kjörinn formaður flokksins. Á sama tíma hefur afstaða Samfylkingarinnar og stjórnarandstöðuflokkanna ætíð legið fyrir. Mánudaginn 19. mars kl. 20 munu hinir staðföstu stríðsandstæðingar efna til baráttusamkomu í Austurbæ. Þar verður innrásinni mótmælt og þess krafist að íslensk stjórnvöld axli ábyrgð vegna sorglegs stuðnings þeirra við hina ólöglegu innrás. Höfundur er formaður Ungra jafnaðarmanna.
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Coda Terminal hefur ekki áhrif á neysluvatnsból höfuðborgarsvæðisins Sigrún Tómasdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn mun leggja fram tillögu um íbúakosningu um Coda Terminal verkefnið í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun