Handbolti

HK náði jafntefli við Val

Valsstúlkur töpuðu dýrmætu stigi í toppbaráttunni í kvöld
Valsstúlkur töpuðu dýrmætu stigi í toppbaráttunni í kvöld
Þrír leikir fóru fram í DHL-deild kvenna í handbolta í kvöld. HK náði 29-29 jafntefli við topplið Vals á útivelli, Stjarnan skellti Gróttu 26-10 á útivelli og þá vann Fram sömuleiðis útisigur á botnliði Akureyrar. Valur er á toppnum með 18 stig eftir 11 leiki, Stjarnan hefur 16 stig eftir 10 leiki, Grótta hefur 16 stig eftir 12 leiki og Haukar hafa 14 stig eftir 11 leiki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×